Fréttir

Samtal við framandi ... Af hugmyndum tvítugra Íslendinga um fjöltrúarlegar aðstæður

Pétur Björgvin Þorsteinsson (2008):

Samtal við framandi ...

Af hugmyndum tvítugra Íslendinga um fjöltrúarlegar aðstæður

Lokaverkefni til MA gráðu í Evrópufræðum við Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Leiðbeindandi: Prófessor, dr. Pétur Pétursson

Ágrip.

Trúfrelsi var innleitt á Íslandi með stjórnarskránni árið 1874. Þrátt fyrir
trúfrelsið eru til frásagnir einstaklinga úr minnihlutatrúfélögum á Íslandi sem hafa
upplifað tortryggni, fordóma og jafnvel ofsóknir vegna trúar sinnar. Trúarlegur
bakgrunnur íbúa á Íslandi hefur breyst töluvert á síðustu 20 árum. Árið 1990
tilheyrðu 92,61% íbúa þjóðkirkjunni en árið 2007 var það hlutfall komið niður í
80,69%. Lítið hefur farið fyrir trúarhópum á Íslandi sem þykja skera sig úr
fjöldanum, en 0,2% íbúa tilheyra t.d. trúfélagi Votta Jehóva og hefur það hlutfall
haldist óbreytt síðustu 20 ár. Vottar Jehóva hafa mætt gagnrýni og andstöðu á
Íslandi sem og annars staðar. Hin síðari ár hefur Ísland þróast frá einsleitu samfélagi
yfir í fjölmenningarsamfélag og hlutfall íbúa með erlent ríkisfang hækkað úr 1,9%
(1990) í 6,8% (2008). Samhliða fjölgun innflytjenda á Íslandi hafa fordómar vaxið í
þeirra garð en kannanir gefa til kynna að þeir séu þó minni á Íslandi en í flestum
löndum Evrópu.


Á evrópskum vettvangi hefur verið bent á mikilvægi þess að stjórnvöld í
Evrópu setji fram aðgerðaáætlanir sem efli baráttuna gegn fordómum og
útlendingafælni. Sérstaklega hefur verið bent á nauðsyn þess að tekið sé á
íslamfælni enda virðist andúð í garð múslima fara vaxandi. Íslamfælnin á sér
birtingarmyndir í því að ráðist er á moskur og annað sem er þeim heilagt og
múslimum er mismunað sökum trúar sinnar. Talið er að 2,5% íbúa
Evrópusambandsins séu múslimar en á Íslandi tilheyrðu 371 einstaklingur Félagi
múslima á Íslandi 1. desember 2007.
Rannsóknarverkefni þetta snýr að fjöltrúarlegum aðstæðum á Íslandi. Unnið
var út frá eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvaða hugmyndir gera tvítugir
Íslendingar sér um fjöltrúarlegar aðstæður, verkefni, vandamál og hugsanlegar
lausnir? Hvað mótar hugmyndirnar, hefur áhrif á þær eða breytir þeim? Hefur
persónuleg reynsla af fjöltrúarlegum aðstæðum áhrif á hvernig þeir skilgreina
aðstæður, verkefni, vandamál og hugsanlegar lausnir?
14 nemendur af lokaári framhaldsskóla voru fengnir til að taka þátt í
rýnihóparannsókn. Notast var við nafnkvarða til að greina ætlaðan fjöltrúarlegan
bakgrunn þátttakenda og ákveðið út frá 21 fjöltrúarlegri breytu í hvorum
rýnihópnum hver þátttakandi tæki þátt. Þeim 7 einstaklingum sem fengu fæst stig á
nafnkvarðanum var safnað í einn hóp annars vegar og þeim 7 einstaklingum sem
fengu flest stig í annan hóp.


Niðurstöður sýna að þátttakendur gera sér litla grein fyrir fjöltrúarlegum
aðstæðum og þar með hafi þau litlar forsendur til þess að greina það verkefni sem
takast þyrfti á við og benda á hugsanlegar lausnir. Hins vegar tjá þau sig á nokkuð
beinskeyttan hátt um fjöltrúarleg vandamál og flokka þau íslam, votta Jehóva og
fólk, sem þeim þykir vera öfgafullt í sinni trú, sem vandamál. Hugmyndir þeirra
virðast vera mótaðar af fréttaflutningi fjölmiðla, bloggumræðu, skoðunum foreldra,
kennsluháttum í skóla og samræðum við jafningja en aðeins að takmörkuðu leyti af
persónulegri upplifun og enn síður af þvertrúarlegri samræðu. Einstaklingar úr
þeirra hópi sem hins vegar hafa einhverja reynslu af fjöltrúarlegum aðstæðum eru
þó líklegri til þess að gera sér grein fyrir fjöltrúarlegum veruleika, líta í eigin barm
og koma með tillögur til úrlausna. Um leið eru þeir líklegri til að bregðast við af
meiri hörku í garð þeirra sem eru annarrar trúar. Niðurstöður gefa einnig
vísbendingar um að þegar einstaklingum með litla fjöltrúarlega reynslu er safnað
saman eru þeir líklegri til þess að láta það sem sagt er um trúarbrögð standa
gagnrýnislaust og finna öryggi í því að fylgja sjálfsskipuðum leiðtoga í umræðunni.
Rannsóknir á þessum vettvangi eru á byrjunarreit og mikilvægt að þeim sá fram
haldið.

 

 



Mynd augnabliksins

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 2434

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning